Fagmennska í fyrirrúmi

Á Húðklíník starfa snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingur og lyfjatæknir sem hafa fengið faglega þjálfun á öll tæki og meðferðir sem í boði eru.  Markmið okkar er að bjóða upp á öruggar og árangursríkar meðferðir með því að leiðarljósi að ná sem bestum árangri fyrir þína húð.  Einnig leggjum við ríka áherslu á persónulega þjónustu og ráðgjöf sem snýr að húðumhirðu og vali á réttum húðvörum. 


Hjá okkur er létt og notalegt andrúmsloft og alltaf stutt í gamanið. 


Við hlökkum til að hitta þig!

Löng reynsla á sviði snyrtimeðferða og húðfegrunar


Við á Húðklínik búum yfir áratuga langri reynslu á sviði snyrtimeðferða og húðfegrunar.  Við höfum það að okkar markmiði að veita þér persónulega, faglega og trausta þjónustu, í notalegu umhverfi.               


Mikil gróska er í þróun tækni og framfara á sviði húð- og snyrtivara og við leggjum metnað í að fylgja þeirri þróun eftir. Við teljum mikilvægt að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á vörur í fremsta gæðaflokki, sem sýnt hafa fram á skilvirkni sína og áhrif í þar til gerðum prófunum. Með því að ganga úr skugga um að við vinnum ávallt með nýjustu fáanlegar vörur, tækni og vottuð húðtæki, sem eingöngu hægt er að nálgast undir leiðsögn fagaðila, getum við unnið saman að því að ná þeim markmiðum sem þú óskar eftir og húðin kallar á.

Share by: