BÓKA MEÐFERÐ

Húðin þín er okkar ástríða

Það er aldrei of seint að

byrja hugsa vel um húðina!

Það getur vafist fyrir mörgum hvað sé rétta og besta leiðin til að ná góðu jafnvægi og árangri þegar kemur að okkar stærsta líffæri húðinni.  Margir viðskiptavina okkar byrja á að koma í  ráðgjöf,  þar sem við greinum húðina og ræðum þau meðferðarúrræði sem hentar hverjum og einum.  Við förum yfir væntingar og notkun á vörum heima en sá þáttur er mjög mikilvægur svo hámarsk árangri sé náð.  Umönnun húðar er langhlaup en ekki spretthlaup.  Út frá þessu setjum við upp meðferðarplan sniðið að þínum þörfum.

Það er mikilvægt að muna að það er engin ein töfralausn sem hentar öllum og það tekur tíma að vinna að heilbrigði húðarinnar.

Þú getur bókað í fría ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar hvort sem er fyrir meðferðir eða val á húðvörum.


Faglegar - Viðurkenndar - Húðvörur - Þróaðar af húðlæknum


Ekki bíða, byrjaðu strax þá ertu skrefinu nær að unglegri, heilbrigðri húð. 

Við hjá Húðklínik vinnum eingöngu með húðvörum þróuðum af húðlæknum.  Við erum brautryðjendur hér á landi með medical grade meðferðir frá ítalska framleiðandanum Medixa og Þýska framleiðandanum Dives Med.  Einnig vinnum við með amerísku húðvörurnar  Exuviance sem þróaðar eru af Dr Van Scott og Dr Yu.  Saman eru þeir með fjöldann allan af klínískum rannsóknum og einkaleyfum á bak við sig og eru meðal annars kallaðir feður AlphaHydroxy Acids sýrunnar (AHA) þar sem þeir uppgötvuðu eiginleika og mikilvægi hennar fyrir húðina.  Þeir hlutu alþjóðlega viðurkenningu fyrir þær rannsóknir.  Exuviance eru öflugar, áhrifaríkar húðvörur sem skila árangri.  Hægt er að versla Dives, Medixa og  Exuviance húðvörur til heimanotkunar í vefverslun okkar og á Húðklínik.

VEFVERSLUN

Hvað segja viðskiptavinir okkar ?

Share by: