BIOJUVE Premium Biocellulose Masque

2.500 kr
Price incl. VSK (24%) 484 kr
In stock
Product Details

Steríll, kælandi og rakagefandi andlitsmaski sérhannaður til að róa húðina strax eftir meðferðir eins og örnálameðferð (microneedling), laser, sýrumeðferðir og aðrar húðflagnandi meðferðir.

Helstu eiginleikar og innihald
  • Kælir og róar. Maskinn dregur hratt úr hita, roða og ertingu í húðinni og veitir tafarlausa kælingu við snertingu.
  • Hreint og sterílt innihald. Inniheldur að mestu sterílt vatn í sveigjanlegri biocellulose -himnu (án ilmefna, parabena og ertandi efna) sem fellur þétt að andlitinu eins og önnur húð.
  • Hentar öllum húðgerðum. Öruggur fyrir allar húðgerðir og húðtóna, einnig mjög viðkvæma húð eða húð sem hefur nýlega farið í meðferð.
Notkunarleiðbeiningar
  1. Hreinsaðu húðina og þerraðu hana varlega.
  2. Taktu maskann úr umbúðunum, brjóttu hann upp og fjarlægðu hlífðarfilmurnar af báðum hliðum.
  3. Leggðu maskann yfir andlitið þannig að hann falli vel að augum, nefi og munni og þrýstu loftbólum út.
  4. Láttu maskann liggja á í 10–20 mínútur(allt að 30 mínútur eftir þörfum), fjarlægðu hann síðan og klappaðu þeim raka sem eftir er varlega inn í húðina (ekki skola af) Berðu viðeigandi rakakrem á eftir.



Save this product for later
Share this product with your friends
BIOJUVE Premium Biocellulose Masque