Er ferming framundan?

Ýr Björns • feb. 16, 2023

Skartaðu þinni fegurstu húð á fermingardaginn!

Fermingin er einn af merkustu viðburðum í lífi okkar og á þessum tímamótum vilja flestir skarta sínu fegursta.  Undirbúningur fer oft af stað nokkrum mánuðum fyrir stóra daginn, það þarf að velja réttu fötin, réttu hárgreiðsluna, förðunina og svo er það húðin...


Húðin er engin undantekning,  myndavélarnar (símarnir) eru framan í fermingar ungmennunum allan daginn, og þá er eins gott að húðin sé í lagi!


Við hjá Húðklínik bjóðum upp á árangursríkar meðferðir, meðferðapakka og ráðleggingar um val á réttri heimarútínu sem hennta hverjum og einum, mikilvægt er að hafa í huga, ef um einhver húðvandamál eru að ræða þá er betra að hefjast handa sem fyrst.


Fermingarpakki 1:  Þrjár Demantshúðslípanir með rakaboosti svo húðin ljómi fallega á fermingardaginn.


Húðslípun er áhrifarík meðferð sem fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði
húðarinnar. Unnið er með sérstökum demantshausum með sogkrafti sem eykur blóðflæði
húðarinnar og örvar endurnýjun hennar. Í lok meðferðar er súrefnis og rakatvenna borin
á húðina. Húðin verður frísklegri og áferðafallegri.


Fullt verð: 47.700.-  Verð með afslætti: 38.200.


Fermingarpakki 2:  Þrjár Demantshúðslípanir með JPX3Bio sýrum sem vinna vel
á óhreinindum og fílapenslum.


Húðslípunin undirbýr húðina fyrir JPX sýrumeðferðina með því að hreinsa burt öll óhreinindi
og dauðar húðfrumur ásamt því að örva endurnýjun húðarinnar og auka blóðflæðið.
JPX sýrurnar örva svo yfirborð húðarinnar án þess að valda viðkvæmni og flögnun. JPX sýrurnar
vinna vel á acne húð og koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar án þess að þurrka hana upp.  Húðin verður einstaklega hrein, frískleg og ljómandi.


Fullt verð: 74.700.-  Verð með afslætti: 58.300.-


Fermingarpakki 3: ACNE-OUT sýrumeðferð fyrir vandamálahúðina.


Öflug flögnunarmeðferð hönnuð fyrir feita, blandaða og acne húð.  Meðferðin hefur sterk
bakteríudrepandi áhrif ásamt því að draga úr þrota, bólgum, viðkvæmni og roða sem fylgir
acne húðinni.  AcneOut Peel stuðlar að jafnvægi húðarinnar, þéttir hana og minnkar ásýnd
húðhola.  Mælt er með að taka 3-6 meðferðír með nokkurra vikna millibili til að ná sem
bestum árangri.


Fullt verð: 59.400.-  Verð með afslætti: 45.400.


Hægt er að bóka í fría ráðgjöf hvort sem er fyrir meðferðir eða val á húðvörum.


Hlökkum til að sjá þig.






BÓKA MEÐFERÐ
Share by: